Fasteignir · Ráðgjöf · Persónuleg þjónusta
Smábátahöfnin í KeflavíkBátar í smábátahöfninni í KeflavíkStrandlengjan í Keflavík, ReykjanesbæHafnarfjarðarkirkja og HafnarfjarðarhöfnMiðborg Reykjavíkur og gamla höfninStykkishólmur og höfnin við Breiðafjörð

HEIMA Á SUÐURNESJUM EÐA ANNARS STAÐAR.
TIL STAÐAR FYRIR ÞIG.

Næsti kafli
byrjar heima.

Við hjálpum þér að finna rétta staðinn.
Og fylgjum þér alla leið heim.

Finndu þína eign ↘
KEFLAVÍK · REYKJANESBÆR
01 / 06

FINNUM ÞINN STAÐ

Eignir sem bíða þín.

Vantar þig aðstoð við leitina? ↗

Sæki eignir…

Smábátar í Keflavíkurhöfn
EignakaupFRÁ ÁRINU 1995
Jakob Ingi Jakobsson
Jakob Ingi JakobssonLögmaður
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Löggiltur leigumiðlari
774 4500 ↗

STERKAR RÆTUR. SKÝR SÝN.

Ágrip af sögu okkar

Eignakaup á rætur að rekja til ársins 1995. Félagið var formlega stofnað 15. maí 1998 undir nafninu Skipasalan ehf. Jakob Ingi Jakobsson, sem lengi vel var eini starfsmaður félagsins, byggði það upp frá grunni.

Jakob Ingi Jakobsson er lögmaður, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali og löggiltur leigumiðlari. Hann býr einnig yfir fjölþættri reynslu og þekkingu sem hann hefur aflað sér með námi og störfum.

Jakob er fæddur og uppalinn við sjávarútveg, ólst upp við smábátaútgerð og stundaði sjómennsku ásamt föður sínum í mörg ár. Hann starfaði síðar hjá Bátum og búnaði ehf. með Brynjari Ívarssyni um langt árabil og lærði meðal annars markaðs- og útflutningsfræði við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Hann hefur einnig sótt fjölda námskeiða á sviði fjármála, viðskipta og stjórnunar. Jakob starfaði síðar sem fjármálastjóri í sjávarútvegi áður en hann sneri sér aftur að rekstri.

Reynsla Jakobs gerir það að verkum að þekking félagsins spannar mörg svið og allnokkur sérfræðiþekking felst í þjónustu þess.

Jakob hefur alla tíð lagt ríka áherslu á góða þjónustu við viðskiptavini sína. Hann telur að ávallt þurfi að bæta og þróa þjónustuna svo viðskiptavinir fái úrlausn sinna mála hjá fyrirtækinu.

Þægilegt viðmót og úrlausn hagsmuna viðskiptavina okkar er okkar helsta markmið.

Eignakaup ehf. leggur metnað sinn í að veita fyrsta flokks þjónustu og hefur það að markmiði að bjóða viðskiptavinum sínum „ávallt bestu þjónustuna og besta verðið“ og mun standa við það!

Við bjóðum þér að hafa samband í síma 774 4500 eða með tölvupósti á jakob@jjl.is jakob@eignakaup.is.

Vertu ávallt velkomin(n)!

ÞJÓNUSTA OG ÞÓKNANIR

Gjaldskrá

Gjaldskrá Eignakaupa. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar eða tilboð í þjónustu.

  1. Söluþóknun m.v. einkasölu: 0,5%-1,9% auk vsk. Þóknun er þó aldrei lægri en kr. 310.000 m/vsk. Leitið tilboða.

  2. Söluþóknun m.v. almenna sölu: 1,5%-2,5% auk vsk. Þóknun er þó aldrei lægri en kr. 434.000 m/vsk.

  3. Gagnaöflunargjald seljanda: kr. 68.200.- m/vsk.

  4. Umsýsluþóknun kaupanda: kr. 55.000 án vsk.

  5. Gjald fyrir skjalagerð/samninga: er um 1% + vsk af söluverði eignar en fer þó eftir umfangi. Hafið samband við okkur í síma eða tölvupóst og grennslist fyrir um málið.

  6. Sala félaga og atvinnufyrirtækja: 1%-5% af heildarvirði, þ.m.t. birgðir auk gagnaöflunargjalds. Lágmarksþóknun er kr. 750.000 m/vsk og gagnaöflunargjalds.

  7. Sala bifreiða sem settar eru upp í kaupverð fasteigna: 3% af söluverði auk virðisauka, en þóknun er þó aldrei lægri en kr. 74.400 m/vsk.

  8. Þóknun fyrir að annast milligöngu um og gerð leigusamnings: Þóknun vegna leigusamninga sem gilda í 5 ár eða minna nemur mánaðarleigu auk virðisaukaskatts. Þóknun vegna leigusamninga sem gilda í meira en 5 ár er sem nemur leigu tveggja mánaða auk virðisaukaskatts.

  9. Söluverðmat er endurgjaldslaust

  10. Skriflegt bankaverðmat: kr. 40.000 án vsk.

  11. Skriflegt bankaverðmat atvinnueigna: 0,5% af fasteignamati auk vsk.

  12. Almennt tímagjald lögmanns / löggilts fasteignasala: kr. 33.900 án vsk.

Hafa samband ↗

BYRJUM Á SAMTALI

Hvað getum við
gert fyrir þig?

Segðu okkur frá þínum áformum.
Við hjálpum þér með næstu skref.

774 4500 ↗

Hafnargata 23
230 Reykjanesbær

Sjá staðsetningu ↗

Sendu okkur línu

Opnar tölvupóstforritið þitt. Þú yfirferð og sendir skilaboðin þar.